Upplýsingatæknistjórnun

Á traustum grunni

Upplýsingatækni er lykilstoð í nútímarekstri og hefur áhrif á vinnubrögð, öryggi og ákvarðanatöku. Hún ræður miklu um getu fyrirtækja til að vaxa, þróast og stýra áhættu.


Við veitum markvissa stýringu á upplýsingatæknimálum, hvort sem þörfin er endurskipulag, skýrari ábyrgð eða betri yfirsýn yfir flókin ferli. Nálgun okkar byggir á djúpri þekkingu, agaðri framkvæmd og skýrri tengingu við rekstrarleg markmið. Við vinnum þétt með stjórnendum að stefnumótun, forgangsröðun og framkvæmd þannig að tæknin styðji við það sem skiptir mestu máli í rekstrinum.

Ræðum málin

VIÐ HUGSUM Í HEILD


01. stöðumat

Úttekt á núverandi stöðu, þörfum og áhættu.


02. Stefna og forgangsröðun

Mótun áherslna, vegvísir og forgangsröðun verkefna.


03. Tæknilegt umhverfi og innviðir

Heildarhönnun og stjórn á rekstri tæknilegra innviða.


04. Verkefni og breytingar

Utanumhald verkefna, framvindu, afhendingar og breytingastjórnun.


05. Birgjar og samningar

Val á lausnum, samanburður á valkostum og samningar.


06. Ferlar og umbætur

Greining á ferlum, tillögur og sjálfvirknivæðing þar sem það á við.


Tækni sem samræmist ykkar markmiðum