Úttekt á tækninýtingu og verklagi
Hámörkun tækninnar
Skýr mynd af stöðunni er forsenda þess að taka réttar ákvarðanir um ferla, kerfi og forgangsröðun. Þegar upplýsingarnar eru óljósar verða umbætur tilviljunarkenndar og fjárfestingar ómarkvissar.
Hjá Sessor framkvæmum við óháðar úttektir á verklagi, ferlum, stjórnun og nýtingu kerfa. Við greinum hvað er að virka, hvar eru flöskuhálsar, hvaða áhættur eru til staðar og hvar mesta virðissköpunin liggur.
Niðurstaðan er skýr yfirsýn og raunhæfur grunnur fyrir næstu skref, hvort sem það er endurbætur, endurhönnun ferla eða markvissara lausnaval.
Umsögn
Fagleg og óháð sýn á stöðuna
Sessor var fengið að borðinu til að fara með hlutlausum hætti yfir núverandi stöðu og leggja til leiðir til framtíðar. Fagleg nálgun og yfirgripsmikil þekking Sessor hefur verið okkur ómetanleg og skipt stofnunina miklu máli við mótun stefnu til framtíðar.
Rannveig Þórisdóttir
Sviðsstjóri þjónustusviðs Ríkislögreglustjóra
Útkoma verkefnisins stóðst allar okkar væntingar og tímasetningar stóðust. Vinnan með Sessor hefur nýst okkur vel við innleiðingu á nýjum kerfum og er enn að nýtast okkur vel við að skipuleggja vinnu í nýjum kerfum.
Tryggvi Jóhannsson
Varaformaður Einingar-Iðju
Sérfræðingar Sessor aðstoðuðu við endurhönnun á verkferlum með það að markmiði að fullnýta tæknilegar lausnir, auka sjálfvirkni og draga úr vinnu. Útkoman
hefur haft jákvæð áhrif á starfsfólkið, bætt verklagið og gefið okkur tækifæri til að sinna öðrum mikilvægum verkefnum.
Gylfi Rútsson
Fjármálastjóri Kraftvéla
Úttektin
01
Nýting tæknilausna
Hvernig eru núverandi lausnir nýttar og hver eru tækifærin til að bæta þessa nýtingu?
02
Sjálfvirknivæðing
Hvar er hægt að auka sjálfvirkni til að draga úr handvirkum ferlum og einfalda verk?
03
Innleiðing tæknilausna
Er tæknin í takt við ferlana eða er hún notuð á ómarkvissan hátt?
04
Samþætting kerfa
Eru kerfin þín nægilega samhæfð til að styðja heildstætt við viðskiptaferla?
05
Rauntímaupplýsingar
Eru stjórnendur með aðgang að gögnum sem veita skýra mynd af stöðunni í rauntíma?
06
Ávinningur af tækninni
Skilar tæknin þeim ávinningi sem ætlast var til eða eru tækifæri til að hámarka fjárhagslegan og rekstrarlegan ávinning?
Viltu vita meira?
Við búum yfir margra ára reynslu af því að greina og endurskipuleggja ferla með tæknilausnir að leiðarljósi. Við vinnum að hagræðingu og betra upplýsingaflæði með það að markmiði að þú fáir sem mest út úr tækninni sem þú hefur fjárfest í.

