Rekstrar- og tækniþjónusta

Einbeittu þér að kjarnastarfseminni

Rekstrarumhverfi fyrirtækja krefst öflugra, öruggra og sveigjanlegra lausna sem styðja við daglegan rekstur og þróast með starfseminni. Hjá Sessor sérhæfum við okkur í að tryggja stöðugleika, öryggi og rekstrarhæfni tæknilegra grunnstoða – hvort sem um er að ræða skýjalausnir, staðbundin kerfi eða samsetta innviði.


Við sjáum um rekstur innviða, öryggismál, kerfisstýringu og daglega þjónustu með markvissum hætti. Með skjótum viðbrögðum, skýrum ferlum og reglulegri eftirfylgni tryggjum við að tækniumhverfið styðji við dagleg verkefni, dragi úr áhættu og þróist í takt við þarfir fyrirtækisins.


ÞJÓNUSTAN

Við erum til staðar

Öryggi

Við tryggjum að kerfi, gögn og aðgangar séu varin og í samræmi við viðurkenndar öryggiskröfur.

Afritun

Við sjáum um reglulega afritun og örugga endurheimt gagna ef upp koma truflanir eða bilanir.

Notendaþjónusta

Við sinnum daglegum fyrirspurnum og aðstoð við notendur til að halda rekstri gangandi.

Rekstur kerfa

Við vöktum, uppfærum og viðhöldum kerfum svo þau styðji stöðugan og áreiðanlegan rekstur.

Meira öryggi.

Minni truflun.