Bókhaldsþjónusta og launavinnsla
Bókhald og laun
Þjónusta og ráðgjöf Sessor byggir á skýru verklagi, ábyrgð og rekjanleika. Við tryggjum yfirsýn stjórnenda með rauntímabókhaldi, mánaðarlegum uppgjörum og skýrslugjöf.
Við tökum að okkur bókhald og launavinnslu fyrir fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir. Þjónustan er aðlöguð að rekstri, kerfum og innra skipulagi hvers viðskiptavinar.
Umfang þjónustunnar er stillt af miðað við þarfir ykkar - allt frá ákveðnum verkþáttum til heildarþjónustu.
ÞJÓNUSTUR
Alhliða bókhaldsþjónusta
Almennt bókhald og VSK skil
Skráning og bókun reikninga, afstemmingar á bankareikningum, lánardrottnum og viðskiptamönnum, auk skila á virðisaukaskatti.
Bókhaldið er uppfært í nær rauntíma.
Launavinnsla
Við bjóðum upp á heildarlausn í launavinnslu, allt frá launaútreikningum og skráningu launamanna til samskipta og skila til opinberra aðila.
Með reglulegum uppfærslum tryggjum við að kjarasamningar og lög séu ávallt virt.
Uppgjörsvinna
Mánaðar- og ársuppgjör eru unnin samkvæmt skýrt skilgreindu verklagi með áherslu á gott upplýsingaflæði.
Stjórnendur hafa áreiðanleg gögn við hendina og betri yfirsýn yfir reksturinn.
Greiðsluþjónusta
Greiðslur eru framkvæmdar samkvæmt skilgreindum heimildum og verkaskiptingu, sem tryggir samræmi milli bókhalds, banka og samþykkta með áherslu á yfirsýn og öryggi.
Skýr ábyrgðarsvið
Samningar eru gerðir með skýrri tengingu við þjónustuþætti og fylgt eftir með reglubundnu eftirliti og mælingum, þannig að skuldbindingar, frávik og forsendur liggi skýrt fyrir og auðvelt sé að bregðast tímanlega við frávikum.
Reikningagerð
Reikningagerð er sett upp með skýru flæði frá útgáfu til bókunar og eftirfylgni, sem einfaldar utanumhald og styrkir yfirsýn yfir tekjur og sjóðstreymi.
tÆKNILEG NÁLGUN OG HAGRÆÐI
Allt þjónustuframboð okkar leggur áherslu á að hjálpa fyrirtækjum að ná fram skilvirkni og hagræðingu með nýtingu á tækni og markvissri ferlastjórnun. Lausnir okkar eru hannaðar til að draga úr kostnaði, bæta rekstrarflæði og auka arðsemi.
Til að tryggja að breytingarnar skili fjárhagslegum ávinningi bjóðum við einnig upp á sérhæfða ráðgjöf og fjármálastýringu.
SESSOR
Hvernig við vinnum
Bókhald og launavinnsla hjá Sessor er sett upp sem hluti af stjórnkerfi viðskiptavina.
Áhersla er lögð á skýra ábyrgð, skilgreint verklag og rétta kerfisnýtingu.
Þannig tryggjum við að ferlar séu stöðugir og öruggir, óháð umfangi og rekstrarformi.
