Business Central

Taktu stjórn með Business Central

Business Central er öflug viðskiptalausn í skýinu sem sameinar fjármál, innkaup, birgðir, sölu og þjónustu á einum stað. Með því að tengja saman lykilgögn úr rekstrinum gefur kerfið stjórnendum heildarmynd sem styður við betri ákvarðanir og einfaldari vinnuferla, hvort sem fyrirtækið er að vaxa, bæta nýtingu eða einfalda daglega framkvæmd.

Ræðum málin

Kjarninn í kerfinu

Öflug viðskiptalausn

Allt á einum stað

Fjármál, sala, innkaup og birgðir vinna saman í einu kerfi. Þannig færðu skýra yfirsýn og betri stjórn á daglegum ákvörðunum.

Alltaf uppfært

Kerfið er í skýinu og uppfærist sjálfkrafa. Þú vinnur alltaf í nýjustu útgáfu án kostnaðarsamra uppfærsluverkefna.

Aðgengi án takmarkana

Þú hefur aðgang að kerfinu hvar og hvenær sem er, hvort sem er í vafra eða appi. Sama yfirsýn, sama virkni.

Sjálfvirkni og gervigreind

Með sjálfvirkni og agentic gervigreind verður Business Central virkari þátttakandi í daglegum rekstri. Kerfið sér um endurtekin verkefni, bendir á atriði sem krefjast athygli og styður notendur í næstu skrefum.

Samþætt vistkerfi

Business Central tengist beint við Microsoft lausnir eins og Teams, Outlook og Power BI. Upplýsingar flæða á milli kerfa án handavinnu.

Lausn sem þróast

Kerfið aðlagast þínum rekstri og getur vaxið með honum. Hægt er að bæta við virkni og sérlausnum eftir þörfum.

LAUSNIR SEM SKILA alvöru ÁRANGRI

SETJUM SAMAN RÉTTA LAUSN

Skoðum þetta saman

Sérlausnir

Business Central er öflugur grunnur fyrir rekstur fyrirtækja. Með sérlausnum er hægt að aðlaga kerfið að þörfum félagsins, ferlum, vinnulagi og eðli starfseminnar og bæta yfirsýn.



Vistkerfi Business Central er opið og víðtækt og nær til fjölda sérlausna frá aðilum um allan heim. Það gefur fyrirtækjum svigrúm til að móta lausnina í samræmi við reksturinn.

Samspil sem skilar árangri

Bankakerfi og afstemming

Sjálfvirkar tengingar við banka, innlestur og afstemming bankafærslna sem tryggja nákvæma og rauntíma stöðu í bókhaldi. Þetta dregur úr handvirkri vinnu, eykur nákvæmni og veitir stjórnendum betri yfirsýn.

Laun og mannauður

Lausnir fyrir launaútreikning, tímaskráningu, ferðauppgjör og utanumhald starfsmannamála. Kerfin sjá um sjálfvirka úrvinnslu gagna, rétt skil til skattyfirvalda og auka yfirsýn mannauðsstjórnenda.

Uppáskriftar- og samþykktarkerfi

Viðbætur sem stýra samþykkt reikninga og annarra skjala með skilgreindum flæðum, ábyrgðum og heimildum. Hjálpa til við utanumhald, rekjanleika og fjármálastýringu – sérstaklega í stærri teymum.

Greiðslukerfi og greiðslumiðlun

Viðbætur sem styðja við kortagreiðslur, boðgreiðslur, áskriftagreiðslur, Pay-tengingar og aðrar sjálfvirkar leiðir til að taka við greiðslum. Lausnir sem einfalda móttöku greiðslna og tengjast beint við bókhaldið.

Rafrænir reikningar

Sendir og móttekur rafræna reikninga samkvæmt stöðlum (PEPPOL, XML). Lágmarkar pappírsvinnu, hraðar greiðsluferlum og bætir nákvæmni í bókhaldi.

Rafræn skil á VSK og sköttum

Sjálfvirk meðhöndlun og skil á VSK og öðrum skattayfirlitum. Sparar tíma, lágmarkar villur og tryggir rétt skil til skattyfirvalda.

Innheimtukerfi

Heldur utan um kröfustýringu, sjálfvirka áminningu, innheimtubréf og greiðsluáskoranir. Dregur úr vanskilum og einfaldar utanumhald.

Tollar og innflutningur

Viðbætur sem auðvelda tollaskil og skráningu innflutningsgagna með tengingu við íslensk tollkerfi. Dregur úr villum og flýtir fyrir ferlum í innflutningi og tollameðhöndlun.

Kassakerfi og POS lausnir

Lausnir sem styðja við sölukerfi í verslunum með tengingu við vörulista, birgðir og greiðslumiðlun. Hentar fyrirtækjum í smásölu eða þjónustu sem vilja samræma afgreiðslu og bókhald

Þjónustusamningur

Þjónustusamningur hjá Sessor veitir aðgang að skipulögðum stuðningi þar sem mál eru afgreidd hratt og markvisst. Með samningi er viðbragðstími skilgreindur, forgangsmál tekin framfyrir og erindum beint til sérfræðinga sem þekkja lausnina þína og umhverfið sem hún þjónar. Þetta skapar samfellu og einfaldari samskipti, sérstaklega þegar málið þolir ekki bið.


01. Skilgreindur viðbragðstími

Við svörum innan fyrirfram ákveðins tímaramma.


02. Forgangsmál afgreidd strax

Erindi sem krefjast skjótra úrlausnar fá forgang í afgreiðslu.


03. Samhengi og samfella

Við þekkjum uppsetninguna og höldum utan um söguna, svo ekkert þarf að útskýra upp á nýtt.


Áskriftarleiðir

Viðskiptavinir velja á milli tveggja tegunda leyfa fyrir Business Central: Essential eða Premium.
Premium leyfið felur í sér alla virkni Essential ásamt viðbótareiningum fyrir þjónustustjórnun og framleiðslu.
Við bæði leyfin má bæta við Team Member notendaleyfum eftir þörfum.

Virkni Essentials Premium
Fjármálastjórnun
Sölustjórn og viðskiptatengsl
Innkaup og greiðslur
Birgðastýring og vöruhús
Verkefnastýring og tímaskráning
Grunn mannauðsstjórnun
Gervigreind
Þjónustustjórnun (verkbeiðni, samningar)
Framleiðslustjórnun (framleiðslupantanir, BOM)

Nálgun Sessor

Hjá Sessor nýtum við djúpa þekkingu á rekstri, bókhaldi og upplýsingatækni til að tryggja að Business Central skili raunverulegum árangri, hvort sem um er að ræða afmarkað verkefni eða heildstæða aðkomu. Aðkoman mótast af þörfum hvers fyrirtækis og getur falið í sér innleiðingu, sérsniðnar útfærslur, ráðgjöf eða áframhaldandi þjónustu. Við leggjum áherslu á faglegt samstarf, gagnsæ vinnubrögð og lausnir sem styðja við daglegar ákvarðanir og styrkja reksturinn til framtíðar.

Árangur viðskiptavina

Árangur okkar byggir á árangri viðskiptavina okkar. Með þekkingu og tækni tryggjum við að hvert skref skili mælanlegum rekstrarlegum ávinningi.

Heildstæð nálgun

Með þekkingu í fjármálum, upplýsingatækni, innkaupum og vöruhúsum tryggjum við að hver tilfærsla virki fyrir reksturinn í heild.

Breytingar-stjórnun

Við leiðum breytingar af festu og ábyrgð frá ákvörðun til daglegrar notkunar. Markmiðið er að nýtt verklag festist í starfseminni og skili varanlegum umbótum.

þróun til lengri tíma

Við mótum lausnir sem tryggja stöðugan og fyrirsjáanlegan rekstur um leið og þær skapa svigrúm til markvissrar þróunar til framtíðar.

Power Platform

Power Platform gerir fyrirtækjum kleift að bæta við virkni ofan á Business Central á einfaldan og sveigjanlegan hátt. Með lausnum á borð við Power Apps, Power Automate og Power Pages er hægt að tengja og bæta ferla, einfalda gagnasöfnun og bæta aðgengi að upplýsingum.


Lausnirnar nýtast sérstaklega þegar fyrirtæki þurfa að tengja saman ferla, bæta gagnasöfnun eða koma upplýsingum til lykilnotenda sem starfa utan hefðbundinna kerfisviðmóta. Lausnirnar eru léttar í innleiðingu og skalanlegar með rekstrinum.

Rekstrar - og tækniþjónusta

Við bjóðum einnig upp á rekstrar- og tækniþjónustu sem tryggir að tæknilegir innviðir haldist í traustum farvegi.


Við sjáum um öryggismál, leyfismál, daglega þjónustu og kerfisumsjón og tryggjum að notendur hafi greiðan aðgang að þeim lausnum sem þau treysta á í daglegum rekstri. Með þessum hætti geta stjórnendur einbeitt sér að því sem skiptir máli – á meðan við vöktum, stýrum og styðjum við tæknina sem heldur fyrirtækinu gangandi.

Sjá nánar

Nýttu Business Central til fulls

Við hjálpum fyrirtækjum að fá meira út úr Business Central, með markvissri greiningu, innleiðingu, viðbótum og þjónustu sem byggir á þörfum rekstursins. Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar þínu fyrirtæki.