Innkaup, birgðir og vöruhús
Áreiðanlegt vöruflæði
Sterkari aðfangastýring skilar sér beint í betri rekstri. Skýrari ferlar og rétt nýting tæknilausna bæta yfirsýn yfir vöruflæði, draga úr sóun og kostnaði og hjálpa til við að tryggja að réttar vörur séu til staðar þegar þeirra er þörf, án óþarfa fjárbindingar.
Óskilvirk innkaupa- og birgðastýring getur leitt til umfram birgða, tapaðra tækifæra og aukinnar áhættu. Með markvissum umbótum á ferlum og lausnum má nýta rými, tíma og fjármagn betur og skapa stöðugra flæði frá birgja til viðskiptavina. Við vinnum óháð með viðskiptavinum að því að greina stöðuna, skilgreina raunhæfar umbætur og innleiða lausnir sem styðja við skýr markmið og bættan rekstur.
Hvar liggja næstu tækifæri?
Umfang og áherslur ráðast af þörfum rekstrarins. Þjónusturnar geta verið afmarkaðar eða myndað heildstæða nálgun.
ÚTTEKT OG GREINING
Fyrir fyrirtæki sem vilja fá skýra mynd af stöðunni áður en ákvarðanir eru teknar. Við greinum reksturinn, finnum veikleika og tækifæri og forgangsröðum næstu skrefum.
FERLAR OG UMBÆTUR
Fyrir fyrirtæki sem vilja styrkja innkaupa- og birgðastýringu. Við endurhönnum ferla og verklag, skýrum ábyrgð og styðjum við innleiðingu breytinga.
Stýring og framkvæmd
Fyrir fyrirtæki sem vilja markvissa verkefnastýringu og stuðning við að hrinda umbótum í framkvæmd. Við höldum utan um verkefnið, drífum það áfram og vinnum með stjórnendum að því að koma breytingum í gegn.
Aðferðafræði sem byggir á áralangri reynslu
Hjá Sessor horfum við á innkaup og birgðir í samhengi við reksturinn í heild. Áralöng reynsla gefur okkur skýra sýn á hvað skiptir mestu máli, hvað má einfalda, hvernig breytingar hafa áhrif þvert á reksturinn og hvar þær skila mestum ávinningi.
Hvaða þætti má skoða
Greining og stöðumat
Hvar liggja vandamálin, hvað veldur þeim og hvar eru stærstu tækifærin?
Innkaup og birgðastýring
Hvað á að kaupa, hversu mikið, hvenær og eftir hvaða reglum?
Ferlar og ábyrgð
Hvernig á vinnan að flæða og hver á að bera ábyrgð á hverju?
Vörugögn og stýribreytur
Eru gögnin og forsendurnar nógu góðar til að hægt sé að taka réttar ákvarðanir?
Kerfi og sjálfvirkni
Styðja kerfin við reksturinn eða er starfsfólkið að bæta upp fyrir kerfin með Excel, tölvupóstum og handavinnu?
Umbætur og innleiðing
Hvernig förum við frá greiningunni yfir í breytt verklag, betri kerfisnýtingu og mælanlegan ávinning?
Sessor
Ávinningurinn er skýr
Straumlínulagað vöruhús
Straumlínulagað flæði, betri nýting rýmis og nákvæmari afhending lækkar kostnað og eykur ánægju viðskiptavina.
Öflugur mannauður
Vel skilgreindir ferlar sem eru hluti af fyrirtækjamenningu stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni skilvirkni í daglegum rekstri.
Skilvirkir innkaupaferlar
Sjálfvirknivæðing innkaupa dregur úr handavinnu, minnkar villur og eykur skilvirkni. Betri yfirsýn yfir kostnað og frammistöðu birgja skilar hagkvæmari innkaupum og aukinni framlegð.
Hagkvæm birgðastýring
Hagkvæm birgðastýring tryggir að réttar vörur séu ávallt til staðar fyrir viðskiptavini. Skilvirk birgðastýring dregur úr fjárbindingu og eykur sveigjanleika í rekstri.

