Microsoft lausnir með Sessor
Microsoft lausnir eru kjarninn í rekstri margra fyrirtækja en án markvissrar innleiðingar og skýrra ferla nýtast möguleikarnir oft ekki til fulls. Að tryggja hámarksárangur með Microsoft krefst bæði skilnings á möguleikunum og stefnumótandi nálgunar þar sem rekstur og tækni vinna saman.
Við þekkjum hvernig Microsoft lausnir styðja við rekstur fyrirtækja frá fjármálastjórnun og rekstrarkerfum yfir í samvinnu, skýjaþjónustu og sjálfvirknivæðingu. Með sérþekkingu okkar í upplýsingatækni og stjórnun tryggjum við að fyrirtæki fjárfesti í lausnum sem ekki aðeins mæta núverandi þörfum heldur styðja einnig við áframhaldandi vöxt og þróun.
Sessor er viðurkenndur Microsoft Partner
Áskriftaleiðir
Veldu á milli mánaðarlegrar eða árlegrar áskriftar með sveigjanleika eða hagkvæmni í forgangi. Áskriftir njóta verðverndar á binditíma og leyfafjöldi verður fastur 7 dögum eftir skráningu eða endurnýjun.
Mánaðaráskrift
Sveigjanlegur valkostur þar sem fjölda leyfa er hægt að aðlaga í hverjum mánuði. Þessi leið býður upp á meiri sveigjanleika en er 20% dýrari en árleg áskrift.
Árleg áskrift
Fyrirframgreitt
Hagkvæmasti kosturinn með lægsta einingaverði. Leyfin eru föst út binditímann og ekki er hægt að fækka þeim fyrr en við endurnýjun.
Árleg áskrift
Mánaðarlegar greiðslur
Árgjald er dreift á mánaðarlegar greiðslur án viðbótarkostnaðar. Leyfum er hægt að fjölga á binditíma, en ekki fækka fyrr en við endurnýjun.
Viltu vita meira?
Við hjálpum fyrirtækjum að hámarka nýtingu Microsoft lausna með sanngjörnu verði, faglegri ráðgjöf og markvissri innleiðingu. Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar þínu fyrirtæki.
Hafa samband
Öflug viðbót við Business Central og Microsoft 365
Insight Works
Viðbætur fyrir Business Central sem tryggja betri yfirsýn og skilvirkni í birgðum, vöruhúsum og framleiðslu.
Business Central Insights
Hagkvæmar BI greiningar fyrir Business Central með sérsniðnum skýrslum og innsýn í rekstur.




