Innkaup, birgðir og vöruhús

Áreiðanlegt vöruflæði

Sterkari aðfangastýring skilar sér beint í betri rekstri. Með skýrari ferlum og tæknilausnum næst meiri yfirsýn yfir vöruflæði, minni sóun og lægri kostnaður. Réttar vörur verða til staðar þegar þeirra er þörf – án óþarfa fjárbindingar.


Ómarkviss innkaupa- og birgðastýring þýðir tapað tækifæri, óþarfa lager og meiri áhætta. Með markvissri innleiðingu lausna og ferla er hægt að nýta rými, tíma og fjármagn betur, tryggja stöðugt framboð og hámarka skilvirkni í öllu ferlinu – frá birgjum til viðskiptavina. Við veitum óháða ráðgjöf og mótum lausnir sem styðja við heildarmarkmið fyrirtækisins.

Sessor

Ávinningurinn er skýr

Skilvirkir innkaupaferlar

Sjálfvirknivæðing innkaupa dregur úr handavinnu, minnkar villur og eykur skilvirkni. Betri yfirsýn yfir kostnað og frammistöðu birgja skilar hagkvæmari innkaupum og aukinni framlegð.

Hagkvæm birgðastýring 

Hagkvæm birgðastýring tryggir að réttar vörur séu ávallt til staðar fyrir viðskiptavini. Skilvirk birgðastýring dregur úr fjárbindingu og eykur sveigjanleika í rekstri.

Straumlínulagað vöruhús

Straumlínulagað flæði, betri nýting rýmis og nákvæmari afhending lækkar kostnað og eykur ánægju viðskiptavina.

Öflugur mannauður

Vel skilgreindir ferlar sem eru hluti af fyrirtækjamenningu stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni skilvirkni í daglegum rekstri.

Hvernig við náum árangri


01. Greining á núverandi ferlum



Við kortleggjum starfsemina í heild sinni, metum áhrif aðfangastýringar á rekstur og greinum tækifæri til umbóta.


02. forgangsröðun


Við greinum hvað skiptir mestu máli fyrir reksturinn, hvaða skref hafa mestu áhrif og hvernig hægt er að hámarka skilvirkni.


03. Innleiðing og samþætting kerfa



Við innleiðum lausnir sem henta þínum rekstri og tryggjum hnökralausa samþættingu við núverandi kerfi.


04. Betri yfirsýn og nýting tækni


Við samþættum innkaupa-, birgða- og vöruhúsakerfi við rekstur til að bæta sjálfvirkni og rekjanleika.


05. Þjálfun og stuðningur



Við veitum sérhæfða þjálfun og fylgjum innleiðingu eftir til að tryggja að lausnirnar verði hluti af daglegum rekstri.


Viltu vita meira?

Við bjóðum upp á sérhæfða ráðgjöf sem stuðlar að raunverulegum umbreytingum. Með áherslu á tæknilausnir sem styrkja reksturinn, straumlínulaga verkferla og veita stjórnendum þann stuðning sem þarf til að taka fyrirtækið á næsta stig.