Egill Fannar Reynisson

Framkvæmdarstjóri Radix og dótturfélaga

Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki er það mikil áskorun að geta fylgst með og haldið í við þá þróun sem á sér stað upplýsingatækni og viðhaldi kerfa. Mikil sérþekking á ansi víðamiklu sviði er í raun ekki gerleg nema hjá stórfyrirtækjum og stofnunum.


Félag okkar hafði verið í innleiðingu á nýju viðskiptakerfi, Business Central og LS Central, sem því miður hafði ekki gengið hnökralaust fyrir sig. Staðan var vægast sagt orðin slæm þegar við kölluðum eftir fundi með Sessor. Ég vissi að verkefnið væri ærið og við í raun komin út í miðja á með nokkuð veigamikinn verslunarrekstur. Það létti mikið undir að upplifa þá faglegu nálgun og skilning Sessor á málunum eftir skamman tíma. Þegar búið var að greina heildarmyndina var aðgerðarplan sett í gang með forgangsröðun sem stýrt var af Sessor.


Það var ljóst um leið að þekking Sessor á upplýsingatækni og rekstri var veruleg. Við erum í krefjandi verslunarrekstri þar sem mikilvægt er að vera með góða yfirsýn og fyrirsjáanleika. Stundum er sagt er að “retail is detail” því höfum við áfram átt náið samstarf með Sessor þar sem við fengum þau til þess að stýra upplýsingatæknisviði okkar sem og koma að framkvæmdastjórn okkar félags. Það segir allt um trú okkar og traust á Sessor.


Eftir Lena Brynjarsdóttir 13. febrúar 2026
Sessor tók þátt á UTmessunni 2026, en hún var haldin í 16. skiptið um helgina. Viðburðurinn var vel sóttur, þar sem um 1.500 gestir mættu á ráðstefnudaginn og um 12.000 á opna Tæknidaginn á laugardeginum.
Eftir Sahara Web 28. september 2025
Copilot styður nú íslensku – Sessor hjálpar fyrirtækjum að nýta tækifærið með ráðgjöf, þjálfun og innleiðingu sem skilar raunverulegum árangri.
Andri Dan Traustason
Eftir Lena Brynjarsdóttir 1. september 2025
Með opnun á Húsavík eykur Sessor nálægð sína við fyrirtæki á Norðurlandi og býður faglega þjónustu í fjármálum, bókhaldi og upplýsingatækni.
Eftir Sahara Web 15. ágúst 2025
CIO þjónusta hjá Sessor veitir sérfræðiþekkingu, sveigjanleika og öryggi í tæknimálum – með lægri kostnaði og meiri stjórn.
Sjá meira

Viltu vita meira?

Við erum hér til að finna lausn sem hentar þér. Við bjóðum frían kynningarfund – hafðu samband og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.

Hafa samband

Umsagnir

Eftir Sahara Web 11. ágúst 2021
Frá apríl 2019 hafa ráðgjafar Sessor aðstoðað okkur við endurskipulagningu á fjármáladeild félagsins með áherslu á fullnýtingu kerfa og breyttu verklagi. Frá því að samstarfið hófst hefur HK farið úr...
Eftir Sahara Web 22. júlí 2021
Vegna mikilla breytinga og nýrra verkefna þá stóð embætti Ríkislögreglustjóra frammi fyrir nýjum áskorunum í tölvumálum. Sessor var fengið að borðinu til að fara með hlutlausum hætti yfir núverandi stöðu...
Eftir Sahara Web 21. júní 2021
Að takast á við 20 földun á framleiðslu, innkaupum og flutningum á aðeins örfáum mánuðum hefur verið risavaxið verkefni. Sérfræðingar Sessor hafa komið sterkt inn í þessa vinnu með okkur...